Karellen
news

Skemmtilegt þróunarverkefni

05. 03. 2026

Hæðarból tekur þátt í þróunarverkefni á vegum Fræðslu- og frístundasviðs Garðabæjar, sem stuðlar að því að efla stafræna hæfni barna og starfsfólks í leikskólanum. Verkefnið felst í notkun iPad spjaldtölva í skipulögðum, uppbyggilegum og leikrænum verkefnum með elstu börnunum. Markmiðið er að efla sköpun, tjáningu, læsi og félagsfærni barna þar sem spjaldtölvurnar eru notaðar til sköpunar, lærdóms og í leik en ekki til afþreyingar.

© 2016 - 2026 Karellen