Karellen
news

Umferðafræðsla

05. 06. 2020

Hin árlega umferðafræðsla sem ætluð er börnum sem hefja skólagöngu að hausti og hefur verið á höndum fulltrúa Samgöngustofu hvíldi í ár á herðum stjórnendanna Evu og Önnu. Þær fengu það hlutverk í ár að fræða börnin um umferðina og umferðatengda hegðun s.s. öryggi í bílum, hvernig eigi að fara yfir götu, hvar öruggast er að hjóla og leika sér úti. Í lokin fengu þau afhenta litabók sem áréttar það sem börnin lærðu.

© 2016 - 2024 Karellen