Karellen

Samstarf leik- og grunnskóla

Tengsl leikskóla og grunnskóla eru samstarfsverkefni barna, foreldra og kennara. Tengiliðir Hæðarbóls og Hofsstaðaskóla gera áætlun um samstarf að hausti, með endurskoðun að vori ár hvert. Í október hefjast heimsóknir leikskólabarna til þess að kynnast umhverfi Hofsstaðaskóla, skólahúsnæðinu, bókasafni skólans, íþróttahúsinu og skólalóðinni. Börnin kynnast Regnboganum, tómstundaheimili skólans, taka þátt í viðburðum, samsöng og samveru á sal. Í desember heimsækja nemendur á yngsta stigi Hofsstaðaskóla Hæðarból, taka þátt í jólasöngstund í sal og útiveru. Í janúar taka börn á Hæðarbóli þátt í verkefnavinnu þar sem ákveðið þema er í boði með fyrsta bekk Hofsstaðaskóla. Börnin á Hæðarbóli heimsækja Regnbogann í febrúar og kynnast starfinu sem þar fer fram og er þeim boðið í hádegismat í Hofsstaðaskóla. Í apríl skrá foreldrar börnin sín í þann skóla sem þau koma til með að sækja að hausti.

Tengsl við næsta skólastig og nærumhverfi birtist í því að

  • kennarar skólanna gera starfsáætlun milli skólastiganna um samstarfið
  • börn á báðum skólastigum taka þátt í viðburðum á báðum skólastigum
  • leikskólabörnin taka þátt í verkefnavinnu með grunnskólabörnum
  • kennarar grunnskólans og kennarar leikskólans meta samstarfið í lok skólaársins

© 2016 - 2024 Karellen