Karellen

Breyttar aðstæður í fjölskyldunni

Nauðsynlegt er að tilkynna deildarstjóra breytingar á aðstæðum barns og fjölskyldu til dæmis veikindi, fjarveru foreldra, nýtt heimilisfang og eða annað sem hefur áhrif á líðan barns.

Einnig þarf að tilkynna breytingu á símanúmerum, netföngum, upphaf náms eða námslokum námsmanna ef foreldrar hafa verið í námi og breytta hjúskaparstöðu þar sem þessar aðstæður hafa áhrif á leikskólagjöld til lækkunar eða hækkunar. Foreldrar sem stunda viðurkennt nám þurfa að skila inn námsvottorði og einstæðir foreldrar þurfa að skila inn vottorði um staðfestingu á búsetuformi á Mínum Garðabæ á heimasíðu Garðabæjar.
© 2016 - 2024 Karellen