Við fengum góða gjöf frá foreldrum Yngva sem er nemandi á Hæðarbóli. Rob og Helga færðu okkur heilt brúðuleikhús sem Rob hannaði og smíðaði. Halli leikskólakennari rann á vaðið og vígði leikhúsið og færði börnunum brúðuleikrit. Hugsunin er síðan sú að börnin búi til sínar sýningar og bjóði skólafélögum sínum að horfa.
Frábært framtak hjá þeim hjónum og færum við þeim kærar þakkir fyrir :)