dag var vasaljósadagur á Hæðarbóli. Börnin á Víðiseli nýttu morgunin vel til útivistar með ljósin sín í myrkrinu. Eftir að birtan tók við fóru þau með tjaldið út í garð og nutu þess að sitja þar og fá sér kakó og kleinur. Fuglarnir fengu líka að njóta, en börn og kennarar útbjuggu fuglamat sem var settur upp í tré. Dásamleg morgunstund á fallegum vetrardegi.