Karellen
news

Kartöfluræktun

05. 06. 2020

Þau eru mörg handtökin þegar ákvarðanir eru teknar um ræktun. Eins og ykkur er flestum kunnugt þá fengum við úthlutaða tvö beð í fjölskyldugörðunum til þess að rækta kartöflur. Áður en kartöflur eru settar niður þarf að huga að mörgu. Sinisa hvalrekinn okkar brennur fyrir garðrækt og hann smitar svo sannarlega út frá sér. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir af því þegar þau voru búin að grjóthreins kartöflugarðinn og voru að flytja allt grjótið úr garðinum sem var síðan sett undir leikfangaskúrinn.

© 2016 - 2024 Karellen