Karellen
news

Íþróttadagur

12. 06. 2020

í dag er íþróttadagur og þá þarf að borða mjög hollan mat eins og aðra daga. En í tilefni dagsins kom hvert og eitt barn með grænmeti í leikskólann sem það setti í stóran pott. Síðan eldaði Wang grænmetissúpu úr öllu grænmetinu. Að þessari athöfn lokinni og eftir morgunmat var fylgst með því þegar hoppukastalarnir voru blásnir út. Stuttu síðan komu gestir úr Latabæ, þau Solla stirða og íþróttaálfurinn. Foreldrafélagið kostað bæði heimsókn gesta úr Latabæ sem og hoppukastalanna. Myndirnar segja meira en mörg orð.




© 2016 - 2024 Karellen