Karellen
news

Aldingarður æskunnar

02. 06. 2021

Rotary klubburinn Hof styrkir verkefnið ,,Aldingarður æskunnar". Verkefnið snýst um að ræktuð verði aldintré, ávaxtatré ásamt ýmsum tegundum berjarunna við einn eða fleiri leikskóla bæjarins. Tilgangur verkefnisins er að efla vitund og virðingu ungra barna á slíkri ræktun með því að skapa fallegan trjáreit með algjöra sérstöðu. Þau fá svo að fylgjast með og njóta þeirra ávaxta sem ræktunin skilar. Klubbmeðlimir ásamst garðyrkjudeild komu og gróðursettu með börnunum.

© 2016 - 2024 Karellen