Karellen
news

6 ára bekkur Hofsstaðaskóla í heimsókn

04. 12. 2018

Í dag komu nemendur okkar frá því í fyrra í heimsókn og hittu elstu börn leikskólans, þ.e. árgang 2013. Þau áttu góða stund saman, þau tóku í spil og spilað var á sex borðum. Eftir spilin var farið í salinn og nokkur kunnuleg lög sungin eins og Hæðarbólslagið sem var sungið hressilega. Við þökkum börnunum og kennurum fyrir heimsóknina. Eftir áramót fara elstu börnin svo í Hofsstaðaskóla og kynna sér Regnbogann auk þess sem þau borða með börnunum.

© 2016 - 2024 Karellen